UM FELLSMÖRK

STAÐHÆTTIR

LANDGRÆÐSLU
SKÓGUR

MYNDIR

FÉLAGIÐ

Félagatal

Stjórn

Fundargerðir

Lög félagsins

Ýmis gögn  Fellsmerkur

Meiri gögn

FRÉTTIR

TENGINGAR

SKJALASAFN

 TIL BAKA

 

----------------------
SÉRSTAKT EFNI

Erindi Valdimars af aðalfundi 2012: Umhirða trjágróðurs

Fuglalíf á Fellsmörk

Panoramamyndir


----------------------
FLÝTILEIÐIR

Félagatal

Fundargerðir

Vegir og slóðar

Lönd á Fellsmörk (GPS)

 

  

     

Vinnufundur vegna GPS mælinga í Félagi landnema í Fellsmörk haldinn 10.1.2008



Staður:

Laugateigur 16, Reykjavík

Tími:

10. jan. 2008, kl. 20:00 – 22.30

Viðstaddir: Hannes Siggason (HS) formaður
Frá Keldudal:  Auðunn Oddsson (AO)
Frá Heiðarbraut:  Sigrún María Kristinsdóttir (SMK)
Frá Hlíðarbraut:  Einar Ragnar Sigurðsson (ERS)
Frá Gilbraut:  Einar Kristjánsson (EK)

F
rá Króki:  Hjalti Elíasson (HE)
Frá Hólsbraut:  Kjartan Kárason (KK)

Elín Erlingsdóttir landfræðingur frá Landnotum
 

 


 

Fundarefni:

Skoðun Loftmynda frá Fellsmörk með innfærðum hnitum sem sýna allar landnemaspildur eins og starfsmenn Landnota hafa mælt þær á haustdögum 2007.


Fundargerð:

Skoðun Loftmynda frá Fellsmörk með innfærðum hnitum sem sýna allar landnemaspildur eins og starfsmenn Landnota hafa mælt þær á haustdögum 2007.

HS dreifði ljósritum af loftmyndunum til fundarmanna og öðrum gögnum (1 til 6).

Mynd af hverri braut um sig var varpað með skjávarpa á vegg og sérhver landspilda skoðuð. Nokkur óljós atriði komu fram í Heiðarbraut sem þarf að lagfæra. Munu SMK og Elín Erlingsdóttir finna lausn á því máli. Þá þarf að hafa samband við Jón Þór landnema í Dalbraut og grennslast fyrir um það hvernig hann vill láta spildu sína líta út (nær nú Langt upp í hlíðar Fells). Gerðar voru nokkrar lagfæringar á hnitum í Keldudal í samráði við AO. Aðrar brautir virðast vera í lagi.

Ákveðið að Elín E. færi inn á myndirnar leiðréttingar samkvæmt framansögðu og sendi HS nýjar myndir sem framsendir þær fulltrúum brautanna. Þeir boði hver og einn landnema sinnar brautar til fundar til þess að yfirfara og samþykkja mælingarnar og áriti hver landnemi ljósmynd af sinni braut til samþykkis mælingu hennar.

Haldin verði almennur félagsfundur þegar samþykki ljósmynda allra brauta liggur fyrir og málið yfirfarið og ályktað um það í heild.

 


Fundargerðina ritaði Einar Kristjánsson

 

 

 

 

 

 

2018-2019

2016-2018

2015-2016

2014-2015

2013-2014

2012-2013

2011-2012

2010-2011

2009-2010

2008-2009

2007-2008

2005-2007

2004-2005

2003-2004

2002-2003

 

Facebook síða Fellsmerkur


ÞETTA ER GAMLI VEFUR FELLSMERKUR

Þessum hluta vefsins hefur ekki verið viðhaldið eftir mars 2023.

Nýr vefur er hér: https://www.fellsmork.is/


LUMAR ÞÚ Á EFNI?

Landnemar og aðrir sem luma á efni sem tengist Fellsmörk eru hvattir til að senda það til félagsins svo það komist á vefinn.  Sérstaklega er óskað eftir myndum í hóflegu magni sem m.a. sýna hvernig ræktunarstarfið gengur.

Sendist til umsjónarmanns vefsins á netfangið eragnarsig@gmail.com.