UM FELLSMÖRK

STAÐHÆTTIR

LANDGRÆÐSLU
SKÓGUR

MYNDIR

FÉLAGIÐ

Félagatal

Stjórn

Fundargerðir

Lög félagsins

Ýmis gögn  Fellsmerkur

Meiri gögn

FRÉTTIR

TENGINGAR

SKJALASAFN

 TIL BAKA

 

----------------------
SÉRSTAKT EFNI

Erindi Valdimars af aðalfundi 2012: Umhirða trjágróðurs

Fuglalíf á Fellsmörk

Panoramamyndir


----------------------
FLÝTILEIÐIR

Félagatal

Fundargerðir

Vegir og slóðar

Lönd á Fellsmörk (GPS)

 

  

     

Stjórnarfundur í Félagi landnema í Fellsmörk haldinn 22.11.2007



Staður:

Hlíðargerði 23, Reykjavík

Tími:

22. nóv. 2007, kl. 20:00 – 22.00

Viðstaddir: Hannes Siggason (HS) formaður
Frá Hlíðarbraut:  Einar Ragnar Sigurðsson (ERS)
Frá Gilbraut:  Einar Kristjánsson (EK)

F
rá Króki:  Hjalti Elíasson (HE)
Frá Hólsbraut:  Kjartan Kárason (KK)
Forföll boðuðu:

Frá Keldudal:  Auðunn Oddsson (AO)
Frá Heiðarbraut:  Sigrún María Kristinsdóttir (SMK)


 

Dagskrá fundarins var  svohljóðandi:

 

1) Fundargerð síðasta stjórnarfundar (Umsj: Ritari / EK)
2) Staða GPS-mælinga í Fellsmörk (Umsj: Brautarstjórar og HS)
3)  Umsókn um styrk til Landgræðslunnar (Umsj:  EK)

******Kaffihlé******

4) Lóðarleigusamningar á grundvelli GPS-mælinga og undanfari þeirra (Umsj: HS)
5) Fréttir af stjórnarstörfum SR (Umsj. HE)
6)  Heimasíða félagsins (Umsj. ERS)
7) Önnur mál (Allir)


 

1  Fundargerð síðasta stjórnarfundar.

Fundargerðin var lesin upp (EK) og samþykkt og undirrituð af fundarmönnum.

 

2 Staða GPS-mælinga í Fellsmörk.

HS hafði samband við Elínu Erlingsdóttur hjá Landnotum fyrr í dag: Vantar loftmynd af svæðinu austan Fells; myndir frá austursvæðinu munu berast EE fyrir atbeina Mýrdalshrepps. Úrvinnsla gagna er hafin. Punktur milli spildna 1 og 3 í Heiðarbraut verður leiðréttur; Elín fer á staðinn og mælir punktinn eftir ábendingu frá Björgvini Salómonssyni.

 

3 Umsókn um styrk til Landgræðslunnar.

EK gaf skýrslu um málið. Ekkert hefur enn heyrst frá Landgræðslunni eins og lofað var, þ.e. frá Gylfa Júlíussyni sérfræðingi Landgr. EK mun hafa samband við hann næstu daga til þess að halda málinu vakandi. HE hefur rætt nýlega við Þórarin Þorláksson og Sigurjón Eyjólfsson um varnargarðana á Fellsmörk. Landgr. mun eiga flesta garða á austursvæðinu en Vegagerðin á vestursvæðinu. Hafa bændur fyrir austan áhyggjur af ástandi garðanna.

 

4 Lóðarleigusamningar á grundvelli GPS-mælinga og undanfari þeirra.

HS hefur gert úttekt á þeim landnemasamningum sem til eru og eru þeir til í fjórum gerðum eftir því hvenær þeir eru gerðir. Lagði HS fram útprentað yfirlit um þá gerð samninga sem landnemar eru með. Flestir eru með gerð 4 frá 2001 þar sem gert er ráð fyrir að samningstími fylgi samningstíma SR og LBR. Var álit fundarmanna að texti gerðar 4 skyldi vera grunntexti samninga þeirra landnema sem enn hafa ekki undirritað neina samninga. HS rakti samskipti sín undanfarnar vikur í tölvupósti við aðila málsins: Sveitarstjórann í Vík, sýslumanninn í Vík, HG hjá SR og samskipti SR og LBR. Er ekki annað að skilja en að allir aðilar málsins séu sáttir við að frágangur samninga og þinglýsing eldri og nýrra samninga, ásamt nauðsynlegum stofnskjölum, nái fram að ganga og liggur fyrir hvaða verklagi skuli fylgt. 

 

5 Fréttir af stjórnarstörfum SR.

HE var beðin um að upplýsa stjórn SR um þinglýsingarferlið og þá vinnu sem er í gangi til þess að ljúka því.

 

6 Heimasíða félagsins.

Ákveðið var að setja skannaða gerð af upphaflegum samningi SR við LBR á heimasíðu félagsins. Þá var ERS falið að senda félagsmönnum jóla- og áramótakveðju á heimasíðunni og jafnframt setja myndir, sem voru sýndar á fræðslufundinum 5. nóv. sl., inn á síðuna.

 

7. Önnur mál.

Engin.

 

Fundi slitið kl. 22.00.

 


Fundargerðina ritaði Einar Kristjánsson
Dreifing
: Stjórn félagsins, ;  Heimasíða félagsins

 

 

 

 

 

 

2018-2019

2016-2018

2015-2016

2014-2015

2013-2014

2012-2013

2011-2012

2010-2011

2009-2010

2008-2009

2007-2008

2005-2007

2004-2005

2003-2004

2002-2003

 

Facebook síða Fellsmerkur


ÞETTA ER GAMLI VEFUR FELLSMERKUR

Þessum hluta vefsins hefur ekki verið viðhaldið eftir mars 2023.

Nýr vefur er hér: https://www.fellsmork.is/


LUMAR ÞÚ Á EFNI?

Landnemar og aðrir sem luma á efni sem tengist Fellsmörk eru hvattir til að senda það til félagsins svo það komist á vefinn.  Sérstaklega er óskað eftir myndum í hóflegu magni sem m.a. sýna hvernig ræktunarstarfið gengur.

Sendist til umsjónarmanns vefsins á netfangið eragnarsig@gmail.com.