UM FELLSMÖRK

STAÐHÆTTIR

LANDGRÆÐSLU
SKÓGUR

MYNDIR

FÉLAGIÐ

Félagatal

Stjórn

Fundargerðir

Lög félagsins

Ýmis gögn  Fellsmerkur

Meiri gögn

FRÉTTIR

TENGINGAR

SKJALASAFN

 TIL BAKA

 

----------------------
SÉRSTAKT EFNI

Erindi Valdimars af aðalfundi 2012: Umhirða trjágróðurs

Fuglalíf á Fellsmörk

Panoramamyndir


----------------------
FLÝTILEIÐIR

Félagatal

Fundargerðir

Vegir og slóðar

Lönd á Fellsmörk (GPS)

 

  

     

Stjórnarfundur í Félagi landnema í Fellsmörk haldinn 12.3.2007

(þriðji fundur stjórnar veturinn 2006/2007, haldinn heima hjá Auðuni Oddssyni)

Mættir: Auðunn Oddsson, Einar Kristjánsson, Einar Ragnar Sigurðsson, Kjartan Kárason, Magnús Jóhannesson og Sveinn Björnsson
Forföll:  Hjalti Elíasson

Helstu atriði úr fundargerð:

  1. Athugasemdir við síðustu fundargerð:  Engar.

  1. Fréttir af vegaskemmdum:  EK kom með þær fréttir að austan að vegurinn á austursvæðinu væri rétt svo jeppafær og girðingar dinglandi eftir vatnavexti. Á vestursvæðinu hefur myndast ófært skarð í veginn skömmu áður en komið er að ræsinu. Ákveðið var að reyna að fá þetta í lag fyrir páska.

  1. Samningar við SR: Algjör biðstaða er í þessu máli hjá SR. Fulltrúar SR hafa enn ekki haft tíma til að hittast og ræða lokadrög samningsins en það stóð til í janúar. ERS ætlar að reyna að þrýsta á að þessu verði lokið fyrir aðalfund FLF í apríl.

  1. Samningar landnema: Helgi er búinn að koma upplýsingum til ráðuneytisins um að listi þeirra frá desember 2006 hafi verið ófullnægjandi. ERS er kominn með ljósrit af öllum samningum sem SR hefur undir höndum Á fundinum var farið yfir þá samninga sem stjórnarmenn hafa safnað saman frá síðasta fundi. Eftir er að ná sambandi við nokkra landnema. Komið hafa í ljós nokkur tilvik um að landnemar finni ekki samninga hjá sér og ætlar ERS að tala við Helga hjá SR um það hvað verður gert í þeirra málum.

  1. Umsókn um styrk: Ákveðið var að sækja um styrk til Landgræðslu ríkisins vegna landbrots í Fellsmörk. Ætla EK og MJ að hafa forgöngu í því máli og vinna umsókn í samstarfi við SR og Harald, eiganda Álftagrófar.

  1. Aðalfundur: Ákveðið var að stefna að aðalfundi fimmtudaginn 26.4 2007. KK ætlar að athuga hvort salur Félags frímerkjasafnara sé laus til afnota. KK og HE var falið að taka saman yfirlit yfir verkefni sumarsins í Fellsmörk og EK og MJ ætla að skipuleggja GPS-mælingar sumarsins. Hvort tveggja verður kynnt á aðalfundinum.

  1. Breytingar á fjallskilareglum: MJ benti stjórnarmönnum á nýlega samþykkt sveitarstjórnar Mýrdalshrepps sem leyfir undanþágu frá álagningu fjallskilagjalds að því tilskildu að ekkert fé komi frá viðkomandi í safni eða eftirleitum. Þetta þýðir væntanlega það að SR þarf hér eftir ekki að greiða fjallskilagjald, sem hingað til hefur verið fjármagnað með leigugjöldum landnema.

 

Fundargerð skráð af Sveini Björnssyni

 

 

 

 

 

 

2018-2019

2016-2018

2015-2016

2014-2015

2013-2014

2012-2013

2011-2012

2010-2011

2009-2010

2008-2009

2007-2008

2005-2007

2004-2005

2003-2004

2002-2003

 

Facebook síða Fellsmerkur


ÞETTA ER GAMLI VEFUR FELLSMERKUR

Þessum hluta vefsins hefur ekki verið viðhaldið eftir mars 2023.

Nýr vefur er hér: https://www.fellsmork.is/


LUMAR ÞÚ Á EFNI?

Landnemar og aðrir sem luma á efni sem tengist Fellsmörk eru hvattir til að senda það til félagsins svo það komist á vefinn.  Sérstaklega er óskað eftir myndum í hóflegu magni sem m.a. sýna hvernig ræktunarstarfið gengur.

Sendist til umsjónarmanns vefsins á netfangið eragnarsig@gmail.com.