UM FELLSMÖRK

STAÐHÆTTIR

LANDGRÆÐSLU
SKÓGUR

MYNDIR

FÉLAGIÐ

Félagatal

Stjórn

Fundargerðir

Lög félagsins

Ýmis gögn  Fellsmerkur

Meiri gögn

FRÉTTIR

TENGINGAR

SKJALASAFN

 TIL BAKA

 

----------------------
SÉRSTAKT EFNI

Erindi Valdimars af aðalfundi 2012: Umhirða trjágróðurs

Fuglalíf á Fellsmörk

Panoramamyndir


----------------------
FLÝTILEIÐIR

Félagatal

Fundargerðir

Vegir og slóðar

Lönd á Fellsmörk (GPS)

 

  

     

Stjórnarfundur í Félagi landnema í Fellsmörk haldinn 2.5.2005 

Sjöundi fundur stjórnar Fellsmerkur, haldinn hjá Auðunni

Mættir:  Auðunn Oddsson, Einar Kristjánsson, Einar Ragnar Sigurðsson, Hjalti Elíasson, Magnús Jóhannesson.
Fjarverandi stjórnarmenn:  Kjartan J. Kárason og Sveinn Björnsson

Helstu atriði úr fundargerð (Skráð af ERS vegna forfalla SB):

  1. Samkomulagið við Skógræktarfélags Reykjavíkur: Lítið hefur gerst varðandi samkomulagið við Skógræktarfélag Reykjavíkur en almennt má segja að það sé í lokafrágangi.  Mál sem út af standa eru einkum eftirfarandi:

    1. Tryggja að heiðalönd og upprekstrarréttur fylgi ekki með hinu selda og að núverandi eigandi haldi lögbýlisréttinum.  Ef til standi að stofna nýtt lögbýli þannig að lögbýli verði selt, þá verði það gert áður en salan fer fram.

    Ýmis smáatriði voru eftir og var sá bolti hjá Kjartani og er gert ráð fyrir að endanleg drög verði til í framhaldi af því og þau tekin fyrir á fundi með fulltrúum SkógReyk.  Vonast er til að hægt verði að funda með Helga og Gunnlaugi föstudaginn 13. maí.

  2. Stjórnarmaður í Skógræktarfélagi Reykjavíkur:  Fyrir fund Skóræktarfélags Reykjavíkur kom fram ósk frá framkvæmdastjóra SkógReyk að Félag landnema á Fellsmörk tilnefndi fulltrúa sem gæti tekið sæti í varastjórn Skógræktarfélagsins.  Niðurstaðan varð að stungið var upp á Sigrúnu Kr. Magnúsdóttir, landnema í Heiðarbraut og hefur hún tekið sæti í stjórn Skógræktarfélags Reykjavíkur.  Verður það eflaust til að efla tengslin milli beggja félaganna.

  3. Plöntudagurinn:  Pöntun var send til Landgræðsluskóga að venju.  Svör hafa ekki komið ennþá en gert er ráð fyrir að afgreiðsla málsins gangi eðlilega fyir sig.  Lagt var til að plöntudagurinn verði 18. júní ef útlit verður fyrir að plönturnar beruist í tæka tíð.  Hjalti sem fulltrúi stjórnar í plöntudagsnefndinni kemur þeirri hugmynd áfram.

    Varðandi umsjón á trjánum eftir að þau koma í Fellsmörk þá er gert ráð fyrir að hægt verði að nota aðstöðu við Álftagróf enda ekki gert ráð fyrir að hún hafi verið seld fyrir þann tíma.  Það þarf samt að ræða við fulltrúa Skógræktarfélagsins áður.

  4. Aðalfundur:  Gert er ráð fyrir að samkomulag um yfirtöku rekstrarins verði tekið fyrir á aðalfundu félagsins og það þurfi því að liggja fyrir í endanlegri mynd áður en fundurinn fer fram.  Miðað er við hugsanlegar dagsetningar 25/26. maí eða 31. maí.

    Varðandi erindi á aðalfundinum var rifjað upp að á síðasta ári var uppi hugmynd um að fá skordýrafræðing til að halda erindi um skordýr sem herja á skógrækt.  Einar Ragnar var með það mál á síðasta ári og grefur upp hvar það var statt.

    Varðandi staðsetningu aðalfundar er fyrsti valkostur salur Ferðafélags Íslands en annars kemur salur frímerkjasafnara til greina.

 

 

 

 

 

 

 

2018-2019

2016-2018

2015-2016

2014-2015

2013-2014

2012-2013

2011-2012

2010-2011

2009-2010

2008-2009

2007-2008

2005-2007

2004-2005

2003-2004

2002-2003

 

Facebook síða Fellsmerkur


ÞETTA ER GAMLI VEFUR FELLSMERKUR

Þessum hluta vefsins hefur ekki verið viðhaldið eftir mars 2023.

Nýr vefur er hér: https://www.fellsmork.is/


LUMAR ÞÚ Á EFNI?

Landnemar og aðrir sem luma á efni sem tengist Fellsmörk eru hvattir til að senda það til félagsins svo það komist á vefinn.  Sérstaklega er óskað eftir myndum í hóflegu magni sem m.a. sýna hvernig ræktunarstarfið gengur.

Sendist til umsjónarmanns vefsins á netfangið eragnarsig@gmail.com.