UM FELLSMÖRK

STAÐHÆTTIR

LANDGRÆÐSLU
SKÓGUR

MYNDIR

FÉLAGIÐ

Félagatal

Stjórn

Fundargerðir

Lög félagsins

Ýmis gögn  Fellsmerkur

Meiri gögn

FRÉTTIR

TENGINGAR

SKJALASAFN

 TIL BAKA

 

----------------------
SÉRSTAKT EFNI

Erindi Valdimars af aðalfundi 2012: Umhirða trjágróðurs

Fuglalíf á Fellsmörk

Panoramamyndir


----------------------
FLÝTILEIÐIR

Félagatal

Fundargerðir

Vegir og slóðar

Lönd á Fellsmörk (GPS)

 

  

     

Stjórnarfundur í Félagi landnema í Fellsmörk haldinn 6.10.2004 

(Fundur stjórnar, haldinn hjá Kjartani Kárasyni)

Mættir: Auðunn Oddsson,  Einar Kristjánsson, Einar Ragnar Sigurðsson, Kjartan J. Kárason og Magnús Jóhannesson.
Fjarverandi stjórnarmenn:   Hjalti Elíasson og Sveinn Björnsson

Helstu atriði úr fundargerð: 

  1. Fundartími í vetur
    Gert er ráð fyrir fundum að jafnaði einu sinni í mánuði í vetur og verða þeir annað hvort á þriðjudögum eða fimmtudögum kl. 20:00. Lagt í hendur formanns að skipuleggja fundatímana nánar.
    Ef stjórnin þarf að hittast örar vegna söluferlis Álftagrófar eða annars verða þeir fundir boðaðir sérstaklega.

  2. Erindi frá Mýrdalshreppi um breytingu á skipulagi vegna smáhýsa í Fellsmörk
    Stjórn FLÁF hefur borist erindi frá Mýrdalshreppi um skipulagi á Fellsmörk "verði breytt þannig að hægt sé að gefa leyfi fyrir aukahúsi á lóð, s.s. gestahúsi eða vinnuskúr".  Þetta myndi þýða að smáhýsi margs konar sem eru á svæðinu geta þá fengið varanlegt leyfi en ekki einungis bráðabirgðaleyfi eins og verið hefur.  Allir fundarmenn sammála um að þetta yrði til bót og formanni félagsins falið að svara erindinu í samræmi við það.

  3. GPS mál
    Hlíðarbrautin var mæld upp síðastliðið sumar eftir að landnemar við brautina höfðu farið yfir landamerki með fulltrúa Skógræktarfélags Reykjavíkur.  Niðurstöður mælinga hafa ekki borist en gert er ráð fyrir að hægt verði að ganga frá samningum í Hlíðarbraut til þinglýsingar núna í vetur og síðan á sama hátt fyrir allt svæðið eftir að það hefur verið mælt upp næsta sumar á sama hátt.

  4. Væntanleg sala Álftagrófar
    Formanni félagsins barst nýlega tölvupóstur frá framkvæmdastjóra Skógræktarfélags Reykjavíkur þess efnis að Álftagróf yrði auglýst til sölu fljótlega.
    Í ljósi þess að nefndin sem gert var ráð fyrir að færi á fund ráðherra hefur ekki náð til hans ennþá var ákveðið að endurskipuleggja aðgerðir örlítið og að formaður félagsins kæmi meira inn í vinnuna.  Var honum falið að ganga frá bréfi til ráðherra og stjórnarmanna Skógræktarfélags Reykjavíkur og jafnframt fá fund með ráðherranum.  Álitið var eðlilegt að þrír færu á fund ráðherra af hálfu félagsins og miðað við að formaður þess komi inn í þann hóp þá verði það:  Formaður FLÁF (Einar Ragnar), einn félagsmaður (stungið var uppá Björgvin Salómonssyni) og framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Íslands (Helgi Gíslason)

 

 

 

 

 

 

 

2018-2019

2016-2018

2015-2016

2014-2015

2013-2014

2012-2013

2011-2012

2010-2011

2009-2010

2008-2009

2007-2008

2005-2007

2004-2005

2003-2004

2002-2003

 

Facebook síða Fellsmerkur


ÞETTA ER GAMLI VEFUR FELLSMERKUR

Þessum hluta vefsins hefur ekki verið viðhaldið eftir mars 2023.

Nýr vefur er hér: https://www.fellsmork.is/


LUMAR ÞÚ Á EFNI?

Landnemar og aðrir sem luma á efni sem tengist Fellsmörk eru hvattir til að senda það til félagsins svo það komist á vefinn.  Sérstaklega er óskað eftir myndum í hóflegu magni sem m.a. sýna hvernig ræktunarstarfið gengur.

Sendist til umsjónarmanns vefsins á netfangið eragnarsig@gmail.com.