UM FELLSMÖRK

STAÐHÆTTIR

LANDGRÆÐSLU
SKÓGUR

MYNDIR

FÉLAGIÐ

Félagatal

Stjórn

Fundargerðir

Lög félagsins

Ýmis gögn  Fellsmerkur

Meiri gögn

FRÉTTIR

TENGINGAR

SKJALASAFN

 TIL BAKA

 

----------------------
SÉRSTAKT EFNI

Erindi Valdimars af aðalfundi 2012: Umhirða trjágróðurs

Fuglalíf á Fellsmörk

Panoramamyndir


----------------------
FLÝTILEIÐIR

Félagatal

Fundargerðir

Vegir og slóðar

Lönd á Fellsmörk (GPS)

 

  

     

Stjórnarfundur í Félagi landnema í Fellsmörk haldinn 22.4.2003 

(Áttundi fundur stjórnar veturinn 2002/2003, haldinn hjá Áslaugu)

Mættir: Áslaug B. Ólafsdóttir, Einar Ragnar Sigurðsson, Elsa G. Vilmundardóttir, Magnús Jóhannesson  og Sveinn Björnsson.
Helstu atriði úr fundargerð:
  1.  Aðalfundur: Ákveðið var að fresta áður ákveðnum aðalfundi um viku og halda hann þann 13. maí næst komandi. Annað stendur óbreytt varðandi ákvarðanir um fundinn og verður sent út fundarboð á næstu dögum.

  2. Framtíð Álftagrófar og leigusamninga á Fellsmörk: Ákveðið var að reyna að fá fund með landbúnaðarráðuneytinu fyrir aðalfundinn og ræða áform varðandi Álftagróf, en fréttir hafa borist af fyrirhugaðri sölu húsanna ásamt 25 hekturum úr landi jarðarinnar. Einar og Magnús munu fara á fundinn fyrir hönd stjórnar félagsins.

    Á fundinum voru settir upp nokkrir kostir varðandi framtíð leigusamninga landnema í ljósi hugmynda Skógræktarfélagsins og ráðuneytisins. Verða þessir kostir tíundaðir í bréfi sem sent verður með fundarboði aðalfundar.

  3. Plöntudagurinn: Mælst verður til þess við plöntuhópinn að fresta plöntudeginum um eina viku, eða til 21. júní, vegna mikilla forfalla landnema þann 14. júní.

  4. GPS mælingar: Ákveðið var að kynna fyrirhugaðar GPS mælingar á aðalfundinum. Reynt verður að fá nýja staura hjá Skógræktarfélaginu og stefnt að því að búið verði að merkja löndin á fullnægjandi hátt fyrir 15. ágúst í sumar. Fulltrúar brautanna í stjórninni munu hafa umsjón með merkingunum, hver á sinni braut.

 

 

 

 

 

 

2018-2019

2016-2018

2015-2016

2014-2015

2013-2014

2012-2013

2011-2012

2010-2011

2009-2010

2008-2009

2007-2008

2005-2007

2004-2005

2003-2004

2002-2003

 

Facebook síða Fellsmerkur


ÞETTA ER GAMLI VEFUR FELLSMERKUR

Þessum hluta vefsins hefur ekki verið viðhaldið eftir mars 2023.

Nýr vefur er hér: https://www.fellsmork.is/


LUMAR ÞÚ Á EFNI?

Landnemar og aðrir sem luma á efni sem tengist Fellsmörk eru hvattir til að senda það til félagsins svo það komist á vefinn.  Sérstaklega er óskað eftir myndum í hóflegu magni sem m.a. sýna hvernig ræktunarstarfið gengur.

Sendist til umsjónarmanns vefsins á netfangið eragnarsig@gmail.com.