UM FELLSMÖRK

STAÐHÆTTIR

LANDGRÆÐSLU
SKÓGUR

MYNDIR

FÉLAGIÐ

Félagatal

Stjórn

Fundargerðir

Lög félagsins

Ýmis gögn  Fellsmerkur

Meiri gögn

FRÉTTIR

TENGINGAR

SKJALASAFN

 TIL BAKA

 

----------------------
SÉRSTAKT EFNI

Erindi Valdimars af aðalfundi 2012: Umhirða trjágróðurs

Fuglalíf á Fellsmörk

Panoramamyndir


----------------------
FLÝTILEIÐIR

Félagatal

Fundargerðir

Vegir og slóðar

Lönd á Fellsmörk (GPS)

 

  

     

Stjórnarfundur í Félagi landnema í Fellsmörk haldinn 11.02.2003 

(Fimmti fundur stjórnar veturinn 2002/2003, haldinn hjá Kjartani).

Mættir: Áslaug B. Ólafsdóttir, Einar Ragnar Sigurðsson, Kjartan Kárason, Magnús Jóhannesson og Sveinn Björnsson.
Helstu atriði úr fundargerð:
  1. Uppboðsmál: Einar Ragnar kom með þær upplýsingar frá Skógræktarfélaginu að samkomulag væri komið á milli landbúnaðarráðuneytisins og félagsins um lausn á uppboðsmálinu í Álftagróf. Uppboðið er þar með endanlega úr sögunni og leigusamningur varðandi afnot félagsins af jörðinni stendur óbreyttur.

  2. Aðkoma Skógræktarfélagsins: Í samtali Einars við Vigni kom enn fram áhugi Skógræktarfélagsins á að breyta aðkomu félagsins að starfinu í Fellsmörk. Ákvað stjórn Landnemafélagsins að bjóða Vigni á fund stjórnarinnar til að fá að heyra nánar um þær hugmyndir sem Skógræktarfélagið er með í þessum efnum.

  3. GPS-mælingar: Ákveðið að fulltrúi hverrar brautar í stjórn félagsins sjái um að gera landamerkjastikur klárar til mælinga í samráði við nágranna sína. Síðan er stefnt að því að unnt verði mæla stikurnar í sumar

  4. Viðhald svæðis: Varðandi framkvæmdir í sumar þá liggur það helst fyrir að lagfæra vegi, sérstaklega aðalvegi, einnig girðingar sem fóru í flóðunum í haust og svo varnargarð frá Heiðarbraut að Einbúa sem er orðinn mjög illa farinn. Verður þessu komið á framfæri við Vigni hjá Skógræktarfélaginu.  Sjá nánar á myndasíðu.

  5. Plöntun: Kjartan ætlar að fá plöntulista fyrir sumarið og verður hann tekinn fyrir á næsta fundi. Formaður plöntunarhópsins verður boðaður á þann fund.

 

 

 

 

 

 

2018-2019

2016-2018

2015-2016

2014-2015

2013-2014

2012-2013

2011-2012

2010-2011

2009-2010

2008-2009

2007-2008

2005-2007

2004-2005

2003-2004

2002-2003

 

Facebook síða Fellsmerkur


ÞETTA ER GAMLI VEFUR FELLSMERKUR

Þessum hluta vefsins hefur ekki verið viðhaldið eftir mars 2023.

Nýr vefur er hér: https://www.fellsmork.is/


LUMAR ÞÚ Á EFNI?

Landnemar og aðrir sem luma á efni sem tengist Fellsmörk eru hvattir til að senda það til félagsins svo það komist á vefinn.  Sérstaklega er óskað eftir myndum í hóflegu magni sem m.a. sýna hvernig ræktunarstarfið gengur.

Sendist til umsjónarmanns vefsins á netfangið eragnarsig@gmail.com.