UM FELLSMÖRK

STAÐHÆTTIR

LANDGRÆÐSLU
SKÓGUR

MYNDIR

FÉLAGIÐ

Félagatal

Stjórn

Fundargerðir

Lög félagsins

Ýmis gögn  Fellsmerkur

Meiri gögn

FRÉTTIR

TENGINGAR

SKJALASAFN

 TIL BAKA

 

----------------------
SÉRSTAKT EFNI

Erindi Valdimars af aðalfundi 2012: Umhirða trjágróðurs

Fuglalíf á Fellsmörk

Panoramamyndir


----------------------
FLÝTILEIÐIR

Félagatal

Fundargerðir

Vegir og slóðar

Lönd á Fellsmörk (GPS)

 

  

     

Stjórnarfundur í Félagi landnema í Fellsmörk haldinn 5.11.2002 

(annar fundur stjórnar veturinn 2002/2003, haldinn hjá Magnúsi).

Mættir: Áslaug B. Ólafsdóttir, Einar Ragnar Sigurðsson, Elsa G. Vilmundardóttir, Magnús Jóhannesson, Kjartan Kárason og Sveinn Björnsson.
Gestur fundarins var Vignir Sigurðsson framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur.
Helstu atriði úr fundargerð:
  1. Vignir fór yfir stöðu mála í Fellsmörk. Í máli hans kom m.a. fram að Þórarinn bóndi í Álftagróf er á förum þaðan og óvíst hvert framhald verður á búsetu. Jörðin hefur verið skráð á nauðungaruppboð og hefur Skógræktarfélagið fengið tvo lögfræðinga til liðs við sig í því máli. Hafa fulltrúar félagsins átt fundi með ráðuneytinu um framvinduna og er fundur fyrirhugaður aftur í næstu viku. Sagði Vignir að Skógræktarfélagið tæki mjög ákveðið á þessu máli með bæði hagsmuni félagsins og landnema í huga. Mun stjórn landnemafélagsins fylgjast með framvindunni næstu vikurnar og verður Einar í sambandi við Vigni út af þessu máli.

  2. Vignir sagði að mælingum á reitum í Fellsmörk væri lokið og ætlar hann að senda stjórn landnemafélagsins mælipunktana. Aðspurður um endurskoðun útreikninga á leigugjöldum reitanna og færslu þeirra til samræmis við stærð reitanna sagði Vignir þetta væri hugmynd sem þyrfti að ræða betur við stjórn landnemafélagsins síðar. Ekkert væri búið að ákveða í þessu máli.

  3. Vignir sagði að því miður hefði lítið miðað við þau viðhalds- og endurbótaverk sem sett hefðu verið á dagskrá s.l. sumar, þrátt fyrir góðan vilja Skógræktarfélagsins. Ekki eru horfur á að ráðist verði í frekari aðgerðir þar fyrr en uppboðsmálið er til lykta leitt. Þó hefur Þórarinn í Álftagróf verið beðinn að lagfæra veginn austast á svæðinu eftir flóðin í haust.

 

 

 

 

 

 

 

2018-2019

2016-2018

2015-2016

2014-2015

2013-2014

2012-2013

2011-2012

2010-2011

2009-2010

2008-2009

2007-2008

2005-2007

2004-2005

2003-2004

2002-2003

 

Facebook síða Fellsmerkur


ÞETTA ER GAMLI VEFUR FELLSMERKUR

Þessum hluta vefsins hefur ekki verið viðhaldið eftir mars 2023.

Nýr vefur er hér: https://www.fellsmork.is/


LUMAR ÞÚ Á EFNI?

Landnemar og aðrir sem luma á efni sem tengist Fellsmörk eru hvattir til að senda það til félagsins svo það komist á vefinn.  Sérstaklega er óskað eftir myndum í hóflegu magni sem m.a. sýna hvernig ræktunarstarfið gengur.

Sendist til umsjónarmanns vefsins á netfangið eragnarsig@gmail.com.