UM FELLSMÖRK

STAÐHÆTTIR

LANDGRÆÐSLU
SKÓGUR

MYNDIR

FÉLAGIÐ

FRÉTTIR

TENGINGAR

SKJALASAFN

 TIL BAKA

 

----------------------
SÉRSTAKT EFNI

Erindi Valdimars af aðalfundi 2012: Umhirða trjágróðurs

Fuglalíf á Fellsmörk

Panoramamyndir


----------------------
FLÝTILEIÐIR

Félagatal

Fundargerðir

Vegir og slóðar

Lönd á Fellsmörk (GPS)

 

   

 

Fellsmörk

Félag áhugafólks um skógrækt á Fellsmörk í Mýrdal


8. mars 2023
Athugasemdum skilað við aðalskipulag Mýrdalshrepps

Stjórn Félags landnema á Fellsmörk skilaði athugasemdum fyrir hönd landnema þar sem athugasemdir voru gerðar við nokkra þætti skipulagsins.

 


16. febrúar 2023
Almennur félagsfundur, 27. febrúar 2023

Boðað var til almenns félagsfundar í landnemafélaginu:

Það er boðað til almenns félagsfundar í Félagi landnema á Fellsmörk, mánudag 27. febrúar kl. 19:00. Tilefni fundarins er einkum breytingar á aðalskipulagi Mýrdalshrepps og almenn umræða um skipulagsmál. Fundurinn verður í sal Skógræktarfélags Reykjavíkur á Elliðavatni. 


5. febrúar 2023
Ófært á austursvæði Fellsmerkur

Vegurinn skemmdist við brúna yfir Holtsá. Líklegast má telja að þessar vegaskemmdir komi til vegna efnistöku rétt fyrir neðan brúna sem veldur því að það grefur alvarlega frá henni með vegaskemmdum þegar það vex í ánni.

Viðgerð gekk annars nokkuð hratt fyrir sig. Auður í Skógræktarfélaginu gekk í málið.

 


Janúar 2023
Breytt aðalskipulag í Mýrdalshreppi

Sveitarfélagið í Mýrdalshreppi er að gera breytingar á aðalskipulagi hjá sérog hefur tillaga að aðalskipulagi verið auglýst á vef sveitarfélagsins.

Fellsmörk kemur fram á aðalskipulaginu - og kom reyndar einnig fram á eldra skipulagi. Endanleg útfærsla deiliskipulags Fellsmerkur tekur svo mið af gildandi aðalskipulaginu – en vinnu við deiliskipulagið hjá Skógræktarfélagi Reykjavíkur er ekki lokið og þarf væntalega að taka mið af því aðalskipulagi sem tekur gildi væntanlega innan fárra mánaða.

Frestur til að koma með athugasemdir við aðalskipulagið er til 8. mars og öllum er væntanlega heimilt að gera athugasemdir. Stjórn Félags landnema gerir ráð fyrir að skila athugasemdum fyrir hönd félagsins.

 


 

 

 

In Fellsmörk

 

 

    

Facebook síða Fellsmerkur


ÞETTA ER GAMLI VEFUR FELLSMERKUR

Þessum hluta vefsins hefur ekki verið viðhaldið eftir mars 2023.

Nýr vefur er hér: https://www.fellsmork.is/


LUMAR ÞÚ Á EFNI?

Landnemar og aðrir sem luma á efni sem tengist Fellsmörk eru hvattir til að senda það til félagsins svo það komist á vefinn.  Sérstaklega er óskað eftir myndum í hóflegu magni sem m.a. sýna hvernig ræktunarstarfið gengur.

Sendist til umsjónarmanns vefsins á netfangið eragnarsig@gmail.com.